Stærðfræði
Góðan dag og velkomin á stærðfræðivef Hugverks.
Ég tek að mér námsaðstoð
og aukatíma í stærðfræði 10. bekkjar og
fyrstu áfanga VMA
Ég
heiti Björgvin Árnason og er vélstjóri að
mennt. Ég lauk 3ja stigi vélstjórnar frá
VMA vorið 1990 og stúdentsprófi frá Raungreinadeild
sama skóla 1991. Ég starfaði sem leiðbeinandi
í tækni- og raungreinum við VMA í tvo vetur 1991
til 1993 og tölvufræði við Öldungadeild skólans
2000 til 2001. Ég hef stundað aukakennslu árum saman,
aðallega í stærðfræði. Ég stunda nú nám í tölvunarfræði við HA.
Ég tek að mér að leiðbeina nemendum 10. bekkjar á Akureyri og hjálpa þeim við undirbúning samræmdra prófa í stærðfræði. Einnig tek ég að mér eftirtalda áfanga sem kenndir eru við VMA.
STÆ102, STÆ122, STÆ193, STÆ202, STÆ262, STÆ293, STÆ363
Hér er að finna áfangalýsingar þessara áfanga.
Um er að ræða einkatíma eða 2 nemendur saman í einu. Leiðbeint er eftir samkomulagi, einn til tveir klukkutímar í senn á kvöldin og um helgar. Ég tek að mér bæði staka tíma og stuðning til lengri tíma. Get útbúið verkefni og lagt fyrir ef óskað er.
Hafið samband við mig í síma 897-3258 eða með tölvupósti: bjorgvin@hugverk.com og segið mér hvaða áfanga þið stundið og við finnum tíma til að skoða málið.
Til að lífga aðeins upp á vefinn, hef ég ákveðið að birta hér léttar stærðfræðiþrautir við og við. Mér þætti gaman ef þú vildir reyna þig á þrautunum og senda mér svarið. Ég get ekki lofað verðlaunum, þetta er meira til gamans gert.
| Stærðfræðiþraut no:3
Milli Hérabæjar og Skjaldbökuþorps eru 81 km. Dag einn hleypur héri af stað hvíldarlaust frá Hérabæ til Skjaldbökuþorps og á sama tíma leggur skjaldbaka af stað frá Skjaldbökuþorpi til Hérabæjar einnig hvíldarlaust. Hérinn hleypur 8 km á klukkustund, en skjaldbakan lötrar 1 km á klukkustund. Hvað hefur hérinn hlaupið langt þegar þau mætast? |

