VMA Vefur Verkmenntaskólans á Akureyri. Brekkuskóli Vefur Brekkuskóla. Lundarskóli Vefur Lundarskóla. Oddeyrarskóli Vefur Oddeyrarskóla. Síðuskóli Vefur Síðuskóla. Giljaskóli Vefur Giljaskóla. Glerárskóli Vefur Glerárskóla. Skólatorg.is Skólatorgið er sérhannað vefútgáfukerfi fyrir grunnskóla ásamt fróðlegum upplýsingavef fyrir alla þá er koma að skólamálum. Námsmatsstofnun Hér má meðal annars finna eldri samræmd próf og niðurstöður. Rasmus Vefurinn Umfangsmiklar leiðbeiningar og vefpróf í stærðfræði.

Hugverk Vefur

Stærðfræði

Góðan dag og velkomin á stærðfræðivef Hugverks.

Áfangalýsingar í stærðfræði VMA

 

 

Björgvin Árnason
Hamarstíg 38
600 Akureyri
GSM 897-3258
bjorgvin@hugverk.com
www.hugverk.com

STÆ 102 Jöfnur og hlutföll
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefni eru upprifjun á talnameðferð og jöfnur. Enn fremur er fjallað um hnitakerfið og jöfnu beinnar línu. Áhersla er lögð á að varpa ljósi á hlutfallshugtakið frá mörgum hliðum. Auk styttri verkefna vinni nemendur a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða ritgerð, t.d. um hagnýtingu stærðfræðinnar í daglegu lífi.


STÆ 122 Rúmfræði
Lagður er grunnur að vinnubrögðum í stærðfræði, nákvæmni í framsetningu, röksemdafærslum og lausnum verkefna og þrauta. Meginviðfangsefnin eru á sviði rúmfræði. Fjallað er um nokkur hugtök evklíðskrar rúmfræði og hlutverk hennar í vestrænni menningu. Áhersla er lögð á að varpa ljósi á hlutfallshugtakið. Auk styttri verkefna vinni nemendur a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða ritgerð, t.d. um rúmfræði í sögulegu eða menningarlegu samhengi.


STÆ 193 Talnareikningur og bókstafareikningur.
Talnareikningur og bókstafareikningur. Áfanginn byggist að mestu leyti á efni grunnskólans. Grundvallarreglur stærðfræðinnar rifjaðar upp með ýmis konar nálgun. Meðal efnisatriða eru: forgangsröð aðgerða, almenn brot, bókstafareikningur, jöfnur, hlutföll og prósentur og hnitakerfi.


STÆ 202 Algebra og föll
Undanfari: STÆ 102

Í áfanganum er lagður grundvöllur að skilningi á rauntalnakerfinu og fallhugtakinu ásamt góðri færni í algebru. Fjallað er um ýmsar gerðir jafna og ójafna og algebru og tugabrot í sögulegu samhengi. Auk smærri verkefna vinni nemendur a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða ritgerð um efni tengt inntaki áfangans, t.d. um sögulegt efni.


STÆ 262 Algebra, föll og talningarfræði
Undanfari: STÆ 102

Í áfanganum er lagður grundvöllur að skilningi á tölum, fallhugtakinu og hagnýtingu þess og færni í algebru. Áhersla er lögð á hvernig nota má föll til að leysa hagnýt verkefni og færa fyrirbrigði á sviði náttúrufræði og samfélags, s.s. viðskipta, í stærðfræðilegan búning. Reiknitæki eru notuð til að teikna gröf og leysa verkefni. Nemendur vinni verkefni, einir og í samvinnu við aðra, t.d. um hagnýtingu falla eða um sögulegt efni, leyst með reiknitækjum þar sem við á.


STÆ 293 Talnareikningur og bókstafareikningur II.
Áfanginn byggist að mestu leyti á efni grunnskólans. Grundvallarreglur stærðfræðinnar rifjaðar upp með ýmis konar nálgun. Meðal efnisatriða eru: forgangsröð aðgerða, almenn brot, bókstafareikningur, jöfnur, hlutföll og prósentur og hnitakerfi.


STÆ 303 Hornaföll, vigrar og talningarfræði
Undanfari: STÆ 203

Efni áfangans er vigrar og hornaföll, tengsl algebru og rúmfræði í hnitakerfi og kynning á talningarfræði. Enn fremur er fjallað um sögulega þróun hornafræði og hagnýtingu þekkingar á hornaföllum, m.a. við landmælingar. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist flatarmyndafræði í hnitakerfi og læri að sanna helstu reglur þar að lútandi og beita þeim. Valdar sannanir eru teknar til umfjöllunar. Auk styttri verkefna vinni nemendur a.m.k. eitt samvinnuverkefni eða ritgerð um efni tengt inntaki áfangans.


STÆ 363 Föll og deildun
Undanfari: STÆ 202/262

Efni áfangans er um deildun algengra falla, línulega bestun, runur og raðir og hagnýtingu þessara hugtaka til skýringar á fyrirbærum á sviði náttúru, samfélags og viðskipta. Áhersla er lögð á að nemendur kynnist því hvernig nota má stærðfræði til að líkja eftir ýmsum fyrirbærum og spá fyrir um framvindu þeirra miðað við gefnar forsendur. Auk stuttra æfinga vinni nemendur verkefni, einir og í samvinnu við aðra, um efni tengt inntaki áfangans. Verkefnin eru leyst með reiknitækjum þar sem við á.

Tekið beint af vef Verkmenntaskólans á Akureyri og birt án ábyrgðar

 

Til baka